Pokasíur
Pokasíur

Pokasíur eru algengustu loftsíur í loftræstikerfum, annað hvort notaðar sem grófsíur eða fínsíur eftir því hver þörfin er á hreinleika loftsins.  Pokasíur eru notaðar í loftræstikerfum á helstu stöðum svo sem skrifstofum, atvinnuhúsnæði, almenningsstöðum skólum og sem forsíur þar sem fínni síun fer fram eins og í spítölum eða lyfjaframleiðslu.

Miklu máli skiptir fyrir loftræstikerfi að valdar séu réttar loftsíur og þeim sé skipt reglulega út. Slíkt dregur úr rekstarkostnaði, bætir loftgæði og lengir líftíma kerfanna.

Mikilvægt er að loftræstisíur séu vottaðar með Eurovent, en það tryggir þó ekki gæðin og nauðsynlegt er því að velja góða framleiðendur sem framleiða hágæða loftræstisíur sem standast kröfur og væntingar.

Áður var algengt að pokasíurnar væru framleiddar úr glertrefjum, en í dag eru fjölliðuefni talin vera með betri eiginleika en það fer þó mikið eftir gæðum efnisins sem er notað í slíkum loftsíum.

Rekstrarkostnaður er mjög mikilvægur þáttur í kostnaði loftræstikerfa og er talið að allt að 70% kostnaðarins geti legið í orkukostnaði við rekstur loftræstikerfisins.  Pokasíur frá góðum framleiðanda draga úr rekstrarkostnaði um tugi prósenta, auk þess að tryggja rétt loftgæði yfir langan líftíma. 

Vandaðar loftsíur endast lengur en lélegar síur, því með stærra yfirborði geta þær tekið meira magn af óhreinindum án þess að draga úr loftflæði og því má reikna með lægri rekstrarkostnaði þar sem skipta þarf sjaldnar um síurnar.

Til eru fjölmargir þéttleikar af slíkum síum, en algengustu eru samkvæmt gamla staðlinum M5 og EU7, en einnig er hægt að fá pokasíur með mun meiri þéttleka allt eftir óskum.

Betri týpur af lofsíum eru unnar að hluta eða öllu leiti úr endurunnu efni, en auk þess er hugsað til heildar líftíma síunnar – það er hvernig henni er fargað og hvaða umhverfisáhrif hún hefur á umhverfið og heildar áhrif með orkusparnaði loftræstikerfisins.

Ef þig vantar pokasíur er hægt að fara inn á þessa síðu til að sjá stærðarupplýsingar eða bara hafa samband við okkur í tölvupósti.