Almennt
Vefversluniner rekin af Íshúsinu ehf. Íshúsið ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar með póstinum, vöruflutningamiðstöðum eða kaupandi nær í vöruna í verslun Íshúsins. Flutnings- og póstburðargjöld eru greidd hjá flutningsaðila nema að annað sé tekið fram. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent flutningsaðila eða viðtakanda ef pöntun er sótt í verslun. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Íshúsið ehf með spurningar. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Íshúsinu til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Viðskiptavinur greiðir fyrir póstsendingu við móttöku pöntunar nema að annað sé tekið fram.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun. Með sama hætti gilda tilboð í Verslunun Íshússins ekki alltaf í vefverslun.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Ábyrgð
Allar almennar vörur eru seldar með tveggja ára ábyrgð til neytenda, en eins árs ábyrgð til fyrirtækja og er sölureikningur vörunnar ábyrgðarskírteini hennar. Ábyrgð er tekin á galla í vöru miðað við eðlilega notkun hennar ásamt varahlutum og vinnu. Afhenda skal vöru á verkstæði Íshússins ehf, Smiðjuvegi 4a, 200 Kópavogi. Takmörkun á ábyrgð: Ábyrgð fellur úr gildi: 1. Ef aðrir en starfsmenn Íshússins ehf hafa reynt að gera við vöruna án leyfis Íshússins ehf. 2. Ef varan hefur verið tengd við ranga spennu eða straumtengi. 3. Ef verksmiðjunúmer eða innsigli hafa verið fjarlægð eða rofin 4. Ef varan hefur orðið fyrir slæmri eða rangri meðhöndlun að mati tæknimanna Íshússins eða skemmst í flutningum 5. Varan hafi verið notuð við óviðunandi aðstæður. Ábyrgð er ekki tekin á: 1. Eðlilegu sliti vörunnar 2. Gögnum eða hugbúnaði á hörðum diskum tölva og þarf eigandi að bera kostnað af færslu á þeim á milli diska. 3. Afleiddu tjóni vegna bilunar vöru.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar vara hefur verið afhent flutningsaðila eða móttekin í verslun.

Upplýsingar um seljanda
Íshúsið ehf
Heimilisfang: Smiðjuveg 4a, 200 Kópavogi
Símanúmer: 566 6000
Netfang: ishusid@ishusid.is
Kennitala: 650105-1920
Virðisaukaskattsnúmer: 85688
Opinber skráning: Hjá hlutafélagaskrá – sem einkahlutafélag.